From: Sveinn Pálsson [mailto:sveitarstjori@dalir.is]
Sent: föstudagur, 20. janúar 2017 16:36
To: Regína Ásvaldsdóttir <regina.asvaldsdottir@akranes.is>; Skúli Þórðarson <skuli@hvalfjardarsveit.is>; arnihjorl@gmail.com; Gunnlaugur A. Júlíusson <gunnlaugur@borgarbyggd.is>; 'Eggert Kjartansson' <eggertk@simnet.is>; 'Kristinn Jónasson' <kristinn@snb.is>; Þorsteinn Steinsson <thorsteinn@grundarfjordur.is>; Sturla Böðvarsson <sturla@stykkisholmur.is>
Cc: Úlfar Lúðvíksson <ul01@logreglan.is>; valli@simnet.is; grund@simnet.is; Sveinn Pálsson <sveitarstjori@dalir.is>; Páll Brynjarsson <pall@ssv.is>
Subject: 1511020 - Sameining almannavarnanefnda - tillaga
Akraneskaupstaður
Hvalfjarðarsveit
Skorradalshreppur
Borgarbyggð
Eyja- og Miklaholtshreppur
Snæfellsbær
Grundarfjarðarbær
Stykkishólmsbær
Helgafellssveit
Sæl verið þið
Á 144. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 17. janúar 2017 var eftirfarandi tillaga samþykkt:
Sveitarstjórn Dalabyggðar hvetur til þess að almannavarnanefndir á Vesturlandi verði sameinaðar í eina undir stjórn lögreglustjórans á Vesturlandi.
Á fundinum hafði eftirfarandi komið fram í umræðum um fundargerð almannavarnarnefndar Borgarfjarðar og Dala frá 15. desember 2016:
Sveitarstjóri upplýsti að á fundinum hafi einnig verið rætt um hugmyndir lögreglustjóra um sameiningu almannavarnanefnda í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi. Fram kom að flest eða öll sveitarfélög hafi tekið vel í hugmyndir lögreglustjórans en óljóst væri um næstu skref. Málið var rætt á 130. fundi sveitarstjórnar.
Þarna er vísað í afgreiðslu sveitarstjórna á bréfi lögreglustjóra dags. 9. nóvember 2011.
Bið ykkur hér með að koma þessari hvatningu á framfæri við bæjar/sveitarstjórnir.
Leyfi mér að leggja til að stjórn SSV verði falið að koma málinu í farveg s.s. með því að gera drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna. Fyrirmynd er að finna á Suðurlandi.
Með kveðju,
Sveinn Pálsson
Sveitarstjóri Dalabyggðar
Miðbraut 11, 370 Búðardal.
sími: 430 4700
netfang: sveitarstjori@dalir.is
veffang: www.dalir.is
----------------------------------------------------------------------------------------------
Fyrirvari:
Þessi tölvupóstur getur innihaldið trúnaðarupplýsingar og er eingöngu ætlaður þeim sem hann er stílaður á.
Öll önnur notkun er óheimil og vísast til 47. og 74. gr. Laga nr 81/2003.
Disclaimer:
This e-mail may contain confidential information only intended for the addressee.
Please notify the sender if you have received this e-mail by mistake
--------------------------------------------------------------------------------------------------