Vegna móttöku flóttafólks
Málsnúmer1508429
MálsaðiliVelferðarráðuneytið
Tengiliður
Sent tilGuðný J. Ólafsdóttir
SendandiLovísa Lilliendahl
CCBolli Þór Bollason ;Linda Rós Alfreðsdóttir
Sent13.10.2015
Viðhengi
ATT00001.jpg
Tilvísun í mál: VEL15090077

Sæl Guðný,
Velferðarráðuneytið þakkar þann áhuga og velvilja sem Akraneskaupstaður hefur sýnt áformum um móttöku flóttafólks.
Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar er fyrirhugað að taka á móti flóttamönnum með milligöngu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og er undirbúningur vegna móttöku fyrsta hópsins þegar hafinn. Að fenginni tillögu flóttamannanefndar hefur félags- og húsnæðismálaráðherra ákveðið að þekkjast boð sveitarfélaganna Akureyrar, Hafnarfjarðar og Kópavogs um að taka á móti fyrsta hópnum sem mun koma í desember.
Í ljósi þess að stjórnvöld fyrirhuga að bjóða fleira flóttafólki að setjast að á Íslandi á næsta ári hefur verið ákveðið að halda fund með fulltrúum þeirra sveitarfélaga sem sýnt hafa málefninu áhuga þar sem þeim verður kynnt nánar hvað felst í móttöku flóttafólks.

Jafnframt mun ráðuneytið ræða málefni flóttafólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd hér á landi eftir hælismeðferð en alls hafa 54 einstaklingar fengið stöðu flóttamanns á þessu ári sem er veruleg aukning frá fyrri árum. Ráðuneytið vill með þessu bréfi kanna áhuga fulltrúa þeirra sveitarfélaga sem sýnt hafa áhuga á móttöku kvótaflóttafólks á því hvort vilji sé til þess að taka á móti einstaklingum og fjölskyldum sem fengið hafa stöðu flóttamanns og eru nú þegar á landinu.

Kynningarfundurinn verður haldinn í velferðarráðuneytinu föstudaginn 23. október kl. 13.00 - 16.00. Vinsamlegast staðfestið komu á fundinn með því að svara þessum tölvupósti.

Linda Rós Alfreðsdóttir, linda.ros@vel.is, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu og starfsmaður flóttamannanefndar veitir nánari upplýsingar.

Með kveðju,

 
Lovísa Lilliendahl, verkefnisstjóri / Project Manager

Velferðarráðuneyti / Ministry of Welfare
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 101 Reykjavík, Iceland
Sími/Tel: +(354) 545 8100 - Fax: +(354) 551 9165

velferdarraduneyti.is / Fyrirvari/Disclaimer